157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

hópvernd og stuðningur við Úkraínu.

[10:44]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég vildi víkja að öðru sem tengist erlendum ríkisborgurum á Íslandi sem voru nú aðeins til umræðu í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Mér hefur þótt kyndugt að fylgjast með því að úr ranni ríkisstjórnarinnar eru áhyggjur af erlendum áhrifum á íslensk stjórnmál á sama tíma og ríkisstjórnin reynir að steypa okkur inn í erlent ríkjasamband; þar verða erlendu áhrifin auðvitað ekki minni. Á sama tíma heyrist ákveðinn tónn frá fulltrúum Viðreisnar. Það var maður sem var í 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík, hann er nú borgarfulltrúi, sem talaði fyrir því í aðdraganda kosninga að erlendir ríkisborgarar fengju kosningarrétt til sveitarstjórna þegar í stað við búsetu í landinu; að þeir þyrftu ekki, eins og nú er, að hafa haft búsetu hér til þriggja ára áður en kosningarréttur fæst. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, talaði þá væntanlega fyrir því að stytta þetta niður í búsetu í núll ár þó að mörgum þyki þrjú ár jafnvel stuttur tími. Tekur hæstv. dómsmálaráðherra undir það að breyta ætti kosningalögum til að erlendir ríkisborgarar fengju kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum þegar við komuna til landsins?