157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

hópvernd og stuðningur við Úkraínu.

[10:45]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Stutta svarið er þetta: Það stendur ekki yfir nein vinna, og hún er ekki fyrirhuguð, í dómsmálaráðuneytinu um að breyta kosningalögum í þá veru sem þingmaðurinn er að spyrja um. Það er ekki á dagskrá þannig að það held ég að svari spurningunni hvað þetta varðar. Þarna finnst mér líka ástæða til að horfa til þess hvernig önnur ríki hafa hagað sínum málum. Mér finnst sjálfri eðlilegt að fólk festi rætur, myndi tengsl og að kosningarrétturinn komi í framhaldi af því. Þannig að það stendur engin sérstök vinna yfir hvað þetta atriði varðar.