innflutningur á kartöflum og innlend kartöfluframleiðsla.
Frú forseti. Aftur þakka ég fyrirspurnina. Ég get bara tekið undir það að í því krónuhagkerfi sem við búum er ótækt að hafa krónutölubundna tollvernd sem tekur ekkert tillit til þess að þessi gjaldmiðill þjónar illa hagsmunum atvinnugreina og heimila. Ég veit að það er ekki nákvæmlega svona sem hv. þingmaður lagði það upp en þetta er auðvitað staðan. Nú greinir okkur mögulega á um hvaða leiðir beri að fara til að búa sem best um landbúnaðinn okkar en ég get samt sagt að svo lengi sem tollar eru hluti af því starfsumhverfi sem við veitum landbúnaði þá verður auðvitað að búa svo um hnútana að þeir virki. Ég ætla að taka heils hugar undir með hv. þingmanni hér að þetta er ekki góð þróun eins og þeir hafa þróast síðustu ár þannig að eitthvað þarf að skoða þar.
Síðan bætist auðvitað við, og ég segi það núna því að nú er verið að skoða tollkvótana vegna þeirra alþjóðlegu samninga sem við höfum gert, (Forseti hringir.) að það er líka umhugsunarefni hvaða aðilar innan lands bjóða í kvótana. (Forseti hringir.) Það eru nákvæmlega sömu aðilar og eru að kvarta undan starfsskilyrðum landbúnaðarins og taka þar þátt þannig að þetta virkar ekki eins og við myndum vilja sjá þetta virka. (Forseti hringir.) Hvort það eigi síðan að fara einhverja aðra leið, það er það sem við erum að skoða núna og ég treysti því bara að allar góðar hugmyndir séu ræddar við hv. þingmann.
(Forseti (ÞSv): Forseti hefur verið óvenjuslök gagnvart ræðutímanum þennan mánudagsmorguninn en minnir samt á að í fyrri umferð er ræðutíminn tvær mínútur og í þeirri seinni ein mínúta.)