157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

niðurskurður fjárframlaga til framhaldsskóla.

[10:58]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra svarar hér en afhjúpar í raun vanþekkingu sína á skólastarfi. Það er alveg ljóst að í grunnskólum landsins var stefnan um skóla án aðgreiningar tekin upp án þess að jarðvegurinn hefði verið nógu vel undirbúinn. Nú er ríkisstjórnin búin að innleiða svipuð lög þar sem sú stefna, skóli án aðgreiningar, er tekin upp í framhaldsskólunum. Nýleg skýrsla sem sveitarfélögin gerðu fyrir grunnskólana segir að stærsti hluti kennaranna sé kominn á þann stað að finnast staðan óbærileg. Þetta kerfi er verið að flytja í boði ríkisstjórnarinnar beint inn í framhaldsskólann. Niðurskurðurinn er 7,1%, nokkrir milljarðar, á tímanum. Hvernig er hægt að réttlæta það að vera að auka álagið í skólunum með hægri hendi og skera síðan niður með þeirri vinstri?