157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:48]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég hafði orð á því í Silfrinu í vikunni að ég hefði ekki fundið þess nein dæmi að lönd hefðu látið auðlindir af hendi í aðildarsamningum við ESB. Það er ekkert skrýtið. Ég hefði getað tekið dýpra í árinni. Ég ætla að leyfa mér að vitna beint í einn helsta Evrópuréttarsérfræðing landsins, með leyfi forseta:

„Mér hefur einmitt fundist aðeins sérstakt í umræðunni í rauninni bæði hjá stjórnvöldum og stjórnarandstæðingum að þeir hafa verið að tala um að við þyrftum að tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar í aðildarviðræðum. En það er nú bara þannig að aðildarríki ESB eiga sjálf vatns- og orkuauðlindir sínar. Löggjöf ESB fjallar ekkert um eignarhald á auðlindum eða nýtingu auðlindanna. Auðlindin sjálf er bara í eigu aðildarríkja ESB og líka arðsemin af þeim. Hins vegar setur Evrópusambandið margs konar löggjöf um hvernig undirbúningi fyrir nýtingu auðlinda, t.d. lög um mat á umhverfisáhrifum sem við þekkjum hér á landi. Það er löggjöf sem kemur frá ESB og við erum búin að taka upp í EES-samninginn.“

Þetta kom fram í máli Margrétar Einarsdóttur, prófessors og doktors í Evrópurétti, í frábæru viðtali við hlaðvarpið Meginlandið. Hjá henni kom jafnframt fram að ESB er vissulega einnig með margs konar löggjöf sem snýr að því að koma á innri markaði með raforku og löggjöf til að tryggja meiri orkunýtingu og orkuöryggi o.s.frv. En svo að ég vitni aftur beint, með leyfi forseta: „En það að auðlindin færist á einhvern hátt í eigu ESB, það er bara ekki rétt.“ Hér væri hægt að setja punkt eða einfaldlega endurtaka þetta en þá værum við að skauta yfir að það stendur yfir raunveruleg barátta um auðlindir, ekki við ESB eða erlend ríki, heldur barátta fyrir hönd þjóðarinnar um að tryggja í stjórnarskrá þjóðareign á auðlindum og það eru sterk öfl líka í þessum þingsal sem berjast gegn því, þvælast fyrir breytingu á stjórnarskrá sem myndi tryggja ævarandi (Forseti hringir.) eign og arð þjóðarinnar af auðlindinni. Þetta er barátta gegn sérhagsmunum fyrir þjóðarhagsmunum. [Framíköll í þingsal.]

(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn um að gefa þeim hljóð sem forseti hefur gefið orðið.)