Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins til að ræða hérna mál sem liggur fyrir þinginu um almennar íbúðir sem við vorum með hér í 2. umræðu á þingfundi í gærkvöldi. Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins erum alfarið á móti þeim tillögum sem mælt er fyrir um í frumvarpinu, enda munu þær að öllum líkindum vinna gegn markmiðum frumvarpsins um að auðvelda byggingu nýrra íbúða eins og það stefnir að. Vandi húsnæðismarkaðarins hér á landi er fyrst og fremst sá að vextir eru háir og regluverk í byggingariðnaði óþarflega flókið og íþyngjandi. Sá vandi verður ekki leystur með hækkun stofnframlaga til almennra íbúða. Þvert á móti vinnur slík útgjaldahækkun hins opinbera gegn lækkun vaxta. Með tilliti til versnandi vaxtaumhverfis í kjölfar mikilla útgjaldaaukninga og skattahækkana í fjárlögum fyrir yfirstandandi ár teljum við Sjálfstæðismenn það óábyrgt að auka ríkisútgjöld enn frekar eins og lagt er til í frumvarpinu. Stjórnvöld ættu fremur að draga úr útgjöldum og lækka álögur á fólk og fyrirtæki og styðja við Seðlabanka Íslands í að koma böndum á vextina. Það er óráðlegt að auka umsvif almenna íbúðakerfisins umfram það sem nú er. Mikill meiri hluti landsmanna vill fremur eiga sitt eigið húsnæði en að leigja það. Það hefur komið fram í könnunum þar sem 80% þeirra sem eru á leigumarkaði segjast myndu vilja fremur vera í eigin húsnæði. Það á að vera verkefni okkar. Við, opinberir aðilar, eigum fremur að grípa til aðgerða og leita leiða til að styðja við séreignarstefnuna heldur en að hækka styrki til byggingar leiguíbúða. Á þessum forsendum og fleirum sem koma fram í minnihlutaáliti okkar (Forseti hringir.) leggjum við Sjálfstæðismenn til að þessu máli verði vísað frá.