157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Vextir og verðbólga ráðast fyrst og fremst af því hvernig stjórnvöld halda á hverjum tíma á efnahagsmálum sínum. Í dag erum við með ríkisstjórn sem eyðir meira en hún aflar og hún reynir að skattleggja og skattpína þjóðina og fyrirtækin í landinu til að eiga fyrir þessari eyðslu og verðbólgan og vextirnir eru komin upp úr öllu valdi. Nú er nýjasta mantran hjá hæstv. ríkisstjórn að allt verði miklu betra ef Visa-reikningurinn verður sendur í öðrum gjaldmiðli. Það verði allt miklu betra ef við tökum upp evruna. Þá muni skattar lækka, vextir lækka, verðbólgan lækka o.s.frv. En ef þetta er aðalmálið, virðulegur forseti, ef þetta er aðalmálið fyrir því að við eigum að ganga í Evrópusambandið, af því að við þurfum annan gjaldmiðil, af hverju tökum við þá ekki upp svissneskan franka? Þar eru 0% vextir. Af hverju tökum við þá ekki upp dollar sem við getum tekið einhliða upp? Af hverju tökum við þá ekki bara upp dollar? Allir sjá að þetta snýst ekki bara um gjaldmiðilinn. Þetta snýst um að koma okkur í Evrópusambandið, um að framselja fullveldi landsins til yfirþjóðlegs valds. Það er það sem þessi vegferð ríkisstjórnarinnar snýst um. Hún er búin að gefast upp á verkefninu. Hún er búin að missa stjórn á efnahagsmálum landsins og nú á að reyna að telja þjóðinni trú um það að allt muni verða miklu betra ef Visa-reikningurinn kemur í öðrum gjaldmiðli.

Hvernig væri ef hæstv. ríkisstjórn tæki sig saman í andlitinu og færi að einbeita sér að því að ná stjórn á efnahagsmálum landsins í staðinn fyrir að einbeita sér að því að draga þjóðina í einhvers konar upplýsingaóreiðu um það að allt verði miklu betra með öðrum gjaldmiðli? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)