Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin heim á Alþingi þar sem leikreglur samfélagsins eru settar, þar sem við spyrjum spurninga um hvernig við getum gert betur fyrir fólkið í landinu okkar, tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er fullt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til þess. Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um land allt. Það gerðist ekki af sjálfu sér heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklingnum á enn sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neistann og hún kallaði mig til verka. Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá orðrétt:
„Alþingi ætti að vera eftirsóknarverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“
Ári síðar var ég kjörin á þing og síðan eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og fengið að kynnast fólki um land allt og ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Ég hef séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman.
Með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru; að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka reynst vel á öðrum vettvangi. Í dag verða því kaflaskipti í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og mikilli trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá dýpstu hjartarótum þakka ég samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina. Takk fyrir.