157. löggjafarþing — 115. fundur, 3. júní 2026.
Störf þingsins.
Forseti vill nota þetta tækifæri til þess að þakka Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir hennar störf. Og nú ætlar forseti að vona að hún þurfi ekki aftur á þessu vori að kveðja aðra þingkonu í þessum sal. Hér er einfaldlega um of mikið tilfinningalegt álag að ræða. [Hlátur í þingsal.] En Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fylgja góðar óskir um velfarnað og ég veit að hvar sem hún beitir sér mun hún starfa öllum til góða. — Nú verður gert 15 mínútna hlé á þessum þingfundi. (Forseti hringir.)