samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir sína ræðu og kannski koma inn á nokkra punkta. Stærstu vonbrigði þess sem hér stendur er fjármögnun flugvallakerfis landsins og raunverulega hvernig farið er gegn uppbyggingu þess að fjármagna kerfið. Það á kannski ekki að koma á óvart þar sem þetta er búið að vera hluti af minni vinnu hér í þinginu í níu ár frá því að hv. þm. Jón Gunnarsson gegndi embætti samgönguráðherra fyrir að verða áratug síðan. Þá skipaði hann þann sem hér stendur til að skoða þessi mál sem snúa að flugvallakerfinu og gaf út skýrslu. Varaflugvallargjaldið var tekið upp 1. nóvember 2023 til að fjármagna alþjóðaflugvelli landsins. Síðan var þessi þjónustusamningur á milli ríkisins og Isavia, innanlandsflugs, og inni í þeim tölum hafa verið 350–500 millj. kr. til flugvallakerfisins, minni valla. Nú er búið að taka það fjármagn út og nú á bara að treysta á varaflugvallargjaldið, sem átti bara að fara til alþjóðaflugvallanna, til að fjármagna allt kerfið. Það stenst ekki lögin um varaflugvallargjaldið.
Ég vildi byrja á að spyrja hv. þingmann hvernig þið sjáið þetta fyrir ykkur í meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, hvernig verið er að fara með þetta gagnvart þeirri lagasetningu sem var sett hér um árið, í júní 2023, og síðan var farið að rukka gjaldið 1. nóvember 2023, vegna þess að þetta gengur í berhögg við þá hugmyndafræði sem var hugsuð til þess einmitt að vinna á þessari innviðaskuld sem er í fluginu upp á 16 milljarða. Hér er verið að draga úr og þetta er farið til verri vegar, hvernig staðið er að málum hér. Ég vildi byrja á að spyrja út í þetta, virðulegur forseti.