157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:28]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir andsvarið og taka undir orð hans. Eins og kemur fram í nefndarálitinu held ég að við deilum þessari hugsun varðandi anda laganna um varaflugvallargjald. Þær framkvæmdir eru mjög mikilvægar. Við sáum það við þessa atburði í vetur að verulega reyndi á varaflugvallakerfið. Flugmenn segja að það hafi verið eins gott að verið hafi vont veður því að fólk var þá með svolítið varaeldsneyti í vélunum sem ekki reyndi á. En það er augljóst að þessir vellir eru fljótir að fyllast. Jafnvel þótt framkvæmdir á Egilsstöðum kæmu til mun þetta varaflugvallakerfi hvergi nærri duga, sérstaklega ef við tölum um að tvöfalda flug á Íslandi innan fárra ára.

Ég hygg að talan 2.100 sé algjört lágmark. Sumir myndu segja að kannski væri 3.000 m braut nær lagi en þetta er sótt í þær þarfagreiningar sem gerðar voru í nefndum á vegum Eyjólfs Árna Rafnssonar og birtar þar. Textarnir eru byggðir á þeim skýrslum sem gerðar hafa verið um þetta. Í þeim er gengið út frá því að þetta yrði varaflugvöllur en til þess að eitthvert vit yrði í rekstrinum myndi hann væntanlega taka á sig annað flug, þar á meðal innanlandsflug.