samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég hef í dag verið að spyrjast fyrir um þessa tölu, 2.100 m, hjá fólki sem hefur þekkingu á málaflokknum. Enginn kannast við þessa tölu neins staðar. Það var vitnað í einhverja skýrslu. Þetta er náttúrlega tvennt, varaflugvöllur er eitt og síðan flugvellir sem eru í almennum rekstri varðandi brautarlengdir og slíkt. Mér fannst þetta skrýtin tala og hef rætt þetta aðeins úti í samfélaginu og tékkað á þessu.
Annað á bls. 28 snýr að innanlandsflugvöllum sem ég myndi segja að væru rangfærslur að einhverju leyti varðandi Reykjavíkurflugvöll. Ég bendi á að frá aldamótum hefur hreyfingum á Reykjavíkurflugvelli fækkað úr 120.000–125.000 í 40.000. Það hefur orðið gríðarleg breyting. Það er vegna þess að orðið hefur uppbygging, t.d. uppi í Borgarfirði á Stóra-Kroppi og á Sandskeiði. Töluvert af flughreyfingum hefur farið þangað. Mér finnst þessi texti í nefndaráliti ekki alveg í takt við það sem hefur verið gert í samfélaginu síðustu 25 ár.