samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sömuleiðis fyrir gott samstarf í nefndinni. Ég skil alveg þá hugsun sem hann er að setja fram, að verkefnið færist til innviðafélags sem innheimtir veggjöld og þá sé hægt að spara bein framlög til samgöngumála sem greidd eru með skattfé.
Mín upplifun er raunar önnur. Mín upplifun er að þingmenn þvert á flokka hafi í raun fundið til þess að væntingar og þarfir samfélagsins hafi fyrir dálítið löngu verið komnar töluvert út fyrir þann fjárhagsramma sem samgönguáætlun er settur. Ef við setjum stór verkefni eins og Sundabraut, Hvalfjarðargöng II eða jarðgangaáætlun í eitthvert samhengi við ramma samgönguáætlunar, þá þarf ekki nema eitt eða jafnvel hálft slíkt verkefni að máta sig inn í það til að ryðja öllu hinu út.
Þá hefði þurft að margfalda ramma samgönguáætlunar, sem er kannski óraunhæft nema þingheimur sameinaðist um einhverja sérstaka fjármögnun á því aðra en sem byggð væri á notendum. Ég held að það sé ekki raunhæft. Það er heldur ekki raunhæft ef einhver telur sig geta minnkað fjármagn til samgöngumála almennt vegna tilkomu innviðafélags. Alþingi hefur auðvitað síðasta orðið.
Þetta er hin þverpólitíska afstaða eins og ég skil hana. Ég held að það sé bæði kallað eftir viðhaldi, snjómokstri, þeim framkvæmdum sem eru á samgönguáætlun og líka nýrri fjármögnun fyrir stórframkvæmdir sem innviðafélagið á að takast á hendur.