157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:37]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég ætla að gangast við því að það er ákveðinn freistnivandi fyrir okkur þingmenn, sérstaklega þegar bregðast þarf við náttúruvá eða skyndilegum faröldrum, svo að dæmi séu tekin.

Mig langar til að velta öðru upp því að augljóst er að flest verkefni sem verða á vegum innviðafélagsins munu verða hér suðvestanlands og í kringum höfuðborgarsvæðið. Ég vil spyrja hvort hv. þingmaður deili ekki áhyggjum mínum af því að einhverjir sem búa á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring upplifi að með því að setja á veggjöld séu þeir í raun að niðurgreiða framkvæmdir annars staðar á landinu og finnist að einhverju leyti ósanngjarnt að þeir eigi að bera kostnað af því að Fljótagöng rísi, svo að dæmi sé tekið úr þessari áætlun.