157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:43]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Ég er sammála því að það er spennandi að sjá hvernig hægt er að nýta svigrúm sem skapast. Ef við horfum á þá breytingartillögu eða drög að henni sem nefndin leggur til, þar sem eru mjög góðar áherslur, er það vissulega dæmi um eitthvað sem hægt er að nýta slíkt svigrúm í. En það er alveg ljóst ef við erum að horfa á hluti eins og Fjarðarheiðargöng eða aðrar stórar framkvæmdir að það þyrfti ansi mikið svigrúm og líklega þyrfti, myndi maður halda, að gera ráð fyrir slíku á fimm ára áætluninni. Ég væri til í að heyra bara hvort hv. þingmaður telji ekki þörf á að hugsa það af því að við erum að horfa alveg til 5 ára, að það þurfi að taka það til greina þar.

Í annan stað langar mig að spyrja, bara til skýringar, af því að þegar við erum að bera saman hverju hefur verið eytt í liðinn samgöngur undanfarin ár og núna, ef maður horfir á hvernig málin liggja hjá núverandi ríkisstjórn, þá get ég ekki séð að það sé um stórstökk að ræða. (Forseti hringir.) Ég fæ ekki út þær tölur sem verið hefur verið fjallað um hér, að þetta séu 157 milljarðar, ef við erum bara að horfa á hverju hefur verið eytt í fjárlögum undanfarinna ára. Getur hv. þingmaður, sem er í fjárlaganefnd, (Forseti hringir.) aðeins borið saman hvað hefur verið greitt til samgangna á fjárlagaliðum í fjárlögum undanfarinna ára, ef við horfum bara tvö til þrjú ár aftur í tímann, hvernig samanburðurinn er við núverandi framlög ríkisstjórnarinnar?