samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka seinna andsvar. Við erum einfaldlega ekki komin með tölurnar í tengslum við einstök verkefni sem hugsanlega fara inn í innviðafélag og förum bara yfir þann læk þegar við komum að honum. Ég held að við verðum heldur ekki komin að honum við afgreiðslu fjármálaáætlunar núna, þannig að þetta bíður þá næsta vetrar. Við eigum auðvitað von á nýrri fjármálaáætlun þá og nýrri hugsanlega afmarkaðri breytingartillögu við samgönguáætlun í tengslum við þetta allt saman og ég tek bara undir með þingmanninum að það er mjög spennandi.
Varðandi síðan samanburðinn þá erum við annars vegar að tala um að bera saman síðustu gildandi samgönguáætlun og þessa samgönguáætlun og þá fáum við eina tölu. Síðan gæti myndin flækst ef við berum saman einstök fjárlagaár því að það er eins og mig minni að það hafi verið bætt í einhverju samgönguátaki í tengslum við Covid, þó man ég það ekki alveg. En ég held að það geti komið mismunandi tölur eftir því hvort maður er að bera saman síðustu gildandi samgönguáætlun, þessa samgönguáætlun (Forseti hringir.) og síðan fjárlögin. Svo er enn eitt flækjustigið að sumar samgönguáætlanir voru bara alls ekkert fjármagnaðar. (Gripið fram í.)