samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir prýðisgóða yfirferð og alltaf gaman að hlusta á hv. þingmann tala um flugmálin, þekkingin er mikil. Það eru ýmis atriði sem væri gaman að koma inn á. Ég heyri að hv. þingmaður talar um að áætlunin sé afturhlaðin en það er nú samt þannig að á tíma aðgerðaáætlunar eru 361 milljarður af 1.010 milljörðum sem er ríflega þriðjungur, þannig að þetta er nú ekki alveg svo að þetta sé afturhlaðið þó að auðvitað myndu kannski ákveðnir landshlutar vilja fá meira og fyrr, eðli málsins samkvæmt. Ég heyri áhyggjur af Suðurfjarðavegi og ég deili þeim með hv. þingmanni, ég hef líka, sem þingmaður í Suðurkjördæmi, miklar áhyggjur af ýmsum leiðum þar eins og í Öræfum og Fossálum og Breiðbalakvísl, ég myndi gjarnan líka vilja laga og fækka slysagildrum á þeim hættulegum slóðum, þetta er svona út um allt land. En hv. þingmaður hefur einmitt gengið í gegnum þetta ferli, að fjalla um samgönguáætlun sem, eins og hann veit, er mjög umfangsmikið, fróðlegt og skemmtilegt líka. Hv. þingmaður talaði hér um að það væri nauðsynlegt að fara að endurskoða undirbúningsferlið og ég væri mjög til í að heyra hvernig hann sér það fyrir sér. [Kliður í þingsal.] Nú heyri ég að hann vísar í forgangsröðun jarðganga sem auðvitað var ferli sem var bara byrjað á árið 2020, að leggja hana fram svona númerað eins og nú er gert. Ég hef alveg sjálf hugsað um kosti og galla þess, en hvað um aðra þætti við undirbúning samgönguáætlunar?
(Forseti (BergÓ): Forseti vill biðja hv. þingmenn um hæfilegt hljóð í þingsal.)