staða efnahags- og atvinnulífs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna, það er gott að fá tækifæri til þess að svara henni. Mig langar að byrja á að vekja athygli á því að við erum nú þegar, og það lá fyrir í síðustu fjárlögum, búin að helminga hallann á fjárlögum. Við lækkuðum skuldir ríkissjóðs um 7,5% á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar. Við fórum í góða og nauðsynlega sölu á hlut í Íslandsbanka, sem gekk ekki vel á síðasta kjörtímabili, sem hafði veruleg áhrif á skuldastöðu ríkissjóðs, sem og uppgjör á ÍL-sjóði og það var að mörgu leyti sögulegt slys hvernig gengið var frá þeim sjóði á sínum tíma. Það er því ýmislegt sem hefur gengið vel og við skulum halda því til haga.
Já, við fórum í það hagræðingarátak sem hér er minnst á. Já, það má m.a. sjá það í núgildandi fjármálaáætlun, um 170 milljarðar í hagræðingu. Og já, það birtist líka í aðgerðum sem hafa verið innleiddar hérna. Við erum búin að fækka ríkisstofnunum um 5% á 18 mánuðum og það stendur til að þessi fækkun verði hátt í 15% á kjörtímabilinu. Þessi talning sem hér er verið að vitna til, sem er í höndum Viðskiptaráðs og Morgunblaðsins í morgun — hér er til að mynda tekið eitt dæmi um sameiningu sýslumanna sem við kláruðum á Alþingi í vetur eða vor; mál sem hefur verið talað um í langan tíma, tókst aldrei að klára. Við erum búin að gera það strax á fyrsta heila ári þessarar ríkisstjórnar í þinginu. Í þessari talningu Viðskiptaráðs er sú aðgerð sögð ókláruð vegna þess að við lögðum ekki Þjóðskrá inn í sýslumannsembættið. Það var lagst yfir þá ákvörðun eða tillögu og það var talið að það væri ekki heppilegt sem minnir okkur auðvitað á að þetta eru tillögur, góðar tillögur, en síðan þarf að útfæra þær. Það breytir því ekki að þessari aðgerð er lokið hér í þinginu. Þetta er auðvitað líka ákveðin samhengislaus framsetning hvað þetta varðar. Það breytir því ekki að auðvitað liggur alveg fyrir að fjöldi tillagna er í vinnslu og það er ekkert óeðlilegt að margar þeirra hrökkvi inn á seinni hluta þessa kjörtímabils. Það tekur tíma að snúa skipinu við.