157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

staða efnahags- og atvinnulífs.

[10:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Já, það tekur tíma að snúa við skipinu en það væri æskilegt að því yrði alla vega beint í rétta átt þótt það taki tíma að snúa því. Hæstv. forsætisráðherra kemur hér upp og vitnar enn sem fyrr í atriði frá síðustu ríkisstjórn sem var ekki góð ríkisstjórn, hún var reyndar alveg afleit, en það er hér talið helst þessari núverandi ríkisstjórn til tekna. Getur hæstv. ráðherra fallist á að aðstæður kalli á inngrip af hálfu stjórnvalda núna? Ein leið til þess að bregðast við með afgerandi hætti væri að bregðast við þeirri stöðu sem Icelandair er statt í núna. Það flugfélag er ekki bara eins og hvert annað fyrirtæki; það er á vissan hátt líflína landsins við útlönd. Er ekki tímabært að hæstv. forsætisráðherra, og eftir atvikum utanríkisráðherra, hafi samband við ESB og útskýri fyrir þeim að Ísland muni ekki og geti ekki tekið þátt í þeirri ETS-delluinnleiðingu sem illu heilli var fallist á á síðasta kjörtímabili? Aðstæður bara leyfi það ekki. (Forseti hringir.) Nú sé það neyðarréttur okkar, fullveldisréttur og nauðsyn að hverfa frá þessu. Auðvitað hefði átt að gera þetta, frú forseti, þegar lagðir voru refsitollar á kísiljárnframleiðslu hér en nú er það aldeilis orðið tímabært. (Forseti hringir.) Mun hæstv. ráðherra bregðast við þessu?