157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

staða efnahags- og atvinnulífs.

[10:39]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér er talað um að fara í rétta átt; minnkun halla, lækkun skulda, fjöldann allan af einföldunarmálum sem við höfum ráðist í. Við höfum farið í stórfellda einföldun þegar kemur að leyfisferlum í orkumálum. Við erum að fara í mestu breytingu og einföldun í eftirlitsumhverfi fyrirtækja sem hefur átt sér stað í langan tíma með breytingum á heilbrigðiseftirlitinu. Við vorum að afnema jafnlaunavottunina. Við erum að sameina atvinnu- og dvalarleyfi. Við erum að einfalda og létta á byggingarreglugerð. Já, þessu er ekki öllu lokið en hlutirnir eru að fara í rétta átt.

Hvað varðar stöðu Icelandair sérstaklega, eða umræðuna um hið svokallaða ETS-kerfi, þá höfum við hingað til fengið undanþágu frá því. Það er unnið að því alla daga að halda því til haga hver sérstaða Íslands er og sú barátta er enn í gangi. Við höfum fengið ágætishljómgrunn fyrir því gagnvart Evrópusambandinu. Það eru allir meðvitaðir um að það þarf að halda sérstöðu Íslands á lofti hvað það varðar og það gerum við daglega gagnvart Evrópusambandinu.