skýrsla um gjaldmiðlamál og sveiflur á gjaldmiðlum.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir skýr og mjög greinargóð svör. Það kemur fram í máli fjármála- og efnahagsráðherra í viðtali í Morgunblaðinu í dag að hann hafi ekki áhyggjur af auknu atvinnuleysi ungs fólks til lengri tíma. Með leyfi forseta, segir fjármála- og efnahagsráðherra orðrétt:
„Það er alltaf erfitt á meðan breytingarnar ganga yfir en til lengri tíma litið hef ég ekki áhyggjur.“
Virðulegur forseti. Þarna er ráðherrann að segja að hann hafi ekki áhyggjur af atvinnuleysi ungs fólks til lengri tíma, sem getur komið í kjölfar upptöku evru. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Er hæstv. forsætisráðherra sammála fjármála- og efnahagsráðherra um að Ísland þurfi ekki að hafa áhyggjur af slíku til lengri tíma? Mér þætti vænt um að fá skýrt svar en ekki vangaveltur um það hver spurning mín sé og hver hún eigi að vera.