157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

skýrsla um gjaldmiðlamál og sveiflur á gjaldmiðlum.

[10:47]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég held að við verðum að horfast í augu við það að í gegnum tíðina höfum við notið góðs af því að vera í EES-samstarfinu sem hefur gert það að verkum að á síðustu árum höfum við verið með mjög hreyfanlegt vinnuafl hér á landi. Þegar atvinnuleysi dettur inn hefur það fyrst og fremst — og við sjáum það bara í tölunum, þeir fyrstu sem koma inn þegar þensla er í kerfinu og þeir fyrstu sem fara út er fólk sem er að koma af EES-svæðinu. Það hefur verið lágmarksatvinnuleysi hér á landi og við höfum að einhverju leyti reitt okkur á erlent vinnuafl til að vinna með sveiflunum upp og niður. Það er ekki þar með sagt að það sé gott að fólk lendi í atvinnuleysi en við þurfum að horfast í augu við að það skiptir líka máli að við séum að horfa til að þess að við séum með þessa sveiflujöfnun í kerfinu sem er þessi opni markaður og það sést bara í tölunum. Við þurfum líka að horfa til þess hvers konar störf við erum að skapa. Þess vegna þurfum við að líta til þess að við séum líka að skapa hér aðstæður fyrir stöðugleika í atvinnumálum almennt. Þetta snýst ekki bara um störfin heldur eðli þeirra. Ég vil bara leyfa mér að segja, óháð því hvað við sjáum núna í haust í þessari atkvæðagreiðslu, að framtíðin er björt á Íslandi. (Forseti hringir.) Ég vil að við lítum til ákveðinna valkosta og tækifæra í því samhengi og við þurfum auðvitað að vega og meta þessar hugmyndir. En framtíðin er björt.