157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:00]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar mjög svo góðu ræðu þar sem hún fór vítt og breitt yfir sviðið. Að sjálfsögðu einkenndist ræðan, eins og hjá okkur öllum þingmönnum, svolítið af því að hver og einn þingmaður horfir á sitt kjördæmi. Það má eiginlega segja að samgönguáætlun endurspeglist kannski svolítið í þingmannahópum eftir kjördæmum og áherslum þar frekar en mörgu öðru, en auðvitað eru alveg skýr skil á milli stjórnarandstöðu og stjórnarflokkanna þegar kemur að þessari samgönguáætlun. Það er í rauninni ekki hægt að horfa fram hjá því að þetta helst í hendur; innviðafélagið, stofnun innviðafélags — en eins og ég hef sagt hér áður í dag hefði í rauninni verið nær að afgreiða stofnun innviðafélagsins fyrst, af því að í innviðafélaginu eru stórir hlutar af samgönguáætlun og framtíðarvangaveltur um það hvað eigi að vera í samgönguáætlun og jafnvel hvað eigi að fara úr samgönguáætlun inn í innviðafélagið.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í einn hlut sem snýr að kjördæmi okkar beggja. Það er að aðflugsljósin á Akureyri eru inni í þessum svokallaða, ja, kannski lottópotti samgönguáætlunar, þ.e. ef hin faglega stjórn innviðafélagsins tekur yfir Kjalarnesveg þá koma inn auka 6,3 milljarðar í samgönguáætlun. Þá koma aðflugsljósin en annars ekki. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað henni finnst í rauninni um að það séu 6,3 milljarðar, sem eiga að fara í mörg mjög mikilvæg verkefni og ekki síst í okkar kjördæmi, en það ræðst af því hvort, hvenær, kannski, mögulega og ef það koma fjármunir frá innviðafélaginu.