157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:03]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvarið. Þegar kemur að uppbyggingu varaflugvalla eða alþjóðaflugvalla, ef við horfum á Egilsstaði, Akureyri og Reykjavík, þá var á síðasta kjörtímabili farið í að taka varaflugvallargjald sem átti að fara í sjóð til að fara í uppbyggingu á þessum flugvöllum og m.a. að auka og efla flugöryggi. Ef við horfum á aðflugsljósin gefur það augaleið að það er eitt af þeim verkefnum sem þyrfti að ráðast í til þess að auka flugöryggi. Fyrir mitt leyti myndi ég telja að þetta gjald, varaflugvallargjaldið, ætti að fara í slíkar framkvæmdir. Ef við horfum á flugvallaframkvæmdirnar sjáum við það með þær aðgerðir sem átti að ráðast í í tengslum við Egilsstaðaflugvöll að verið er að fresta þeim framkvæmdum líka. Þetta eru í rauninni spurningar sem við eigum eftir að fá svör við: Hvernig stendur á þessu? Af hverju er verið að fresta þessu öllu saman? Hér er ríkisstjórn sem er búin að segjast ætla að ráðast í þetta allt saman. Þau eru í rauninni komin með tekjur fyrir framkvæmdir við þessa flugvelli. Svo veit ég að það er annað fjármagn sem er eyrnamerkt því að fara í aðra flugvelli og sá pottur átti ekki að breytast. Ég er ansi hrædd um að sá pottur sé líka að lækka og að allar þær tekjur sem áttu að renna í varaflugvallargjaldspottinn séu ekki að skila sér með nægilegum hætti. En þetta er í rauninni eitthvað sem þarf að ráðast í og ef það er rétt sem hv. þingmaður segir hér, ég er ekki að efast um það, ég hef bara ekki heyrt þetta, að þetta byggi á þeim ráðstöfunum hvernig innviðafélagið verður á endanum samþykkt hér á þinginu, hvort það verður samþykkt hér á vorþingi eða hvort það fer inn í næsta vetur og svo í framhaldinu hvaða ákvarðanir það tekur og í rauninni hvaða eignir það tekur inn til sín — mér finnst mjög skrýtið að það byggi á þeim ákvörðunum því að það er algjörlega ófyrirséð hvað verður. Mér finnst það til háborinnar skammar ef þetta er rétt.