157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:07]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Hann kemur svolítið að kjarna ræðunnar minnar um samgönguáætlun sem verkfæri. Samgönguáætlun hefur hingað til virkað vel sem slík, sem áætlun til næstu 15 ára, vegna þess að þingið og framkvæmdarvaldið hefur verið að fylgja áætluninni eftir. Við höfum ekki verið að taka ákvarðanir þvert á samþykkta samgönguáætlun og leggja fram gjörbreytta forgangsröðun. Það er það sem ég hef verið að vara við því að þegar við erum með þessa áætlun, sem er nauðsynleg hvort sem hún er til 10 ára eða 15 ára, þá er verið að undirbúa framkvæmdir til lengri tíma, eins og t.d. Fjarðargöng, sem hv. þingmaður tók hérna sem dæmi. Það tekur þrjú, jafnvel fimm ár að undirbúa ný jarðgöng. Það þarf að fara í alls konar rannsóknir, fá framkvæmdaleyfi og hitt og þetta. Til þess að geta ráðist í framkvæmdina þá þarf það að liggja fyrir og hönnun og fleira. Það er það sem liggur fyrir núna með Fjarðarheiðargöng. Þess vegna vekur það furðu og vekur bara mikil vonbrigði að ríkisstjórnin ákveði að fara þessa leið því að þarna er hún að brjóta blað í því sem hefur í rauninni viðgengist í þinginu á undanförnum árum, þ.e. að við erum bara sammála þessari áætlun, hún er samþykkt á þinginu og framkvæmdarvaldið fylgir henni eftir. En hins vegar kemur hér ný ríkisstjórn sem ákveður að það sé pólitískt betra fyrir þau að hafa aðra forgangsröðun. Þá veltir maður því eðlilega fyrir sér: Við erum með Fjarðarheiðargöng sem eru tilbúin til útboðs og framkvæmdar. Þeim er ýtt til hliðar og við ætlum að fara í Fljótagöng. Gott og vel, förum í þau. Þau eru í undirbúningi núna. Súðavíkurgöng, Hvalfjarðargöng og fleiri koma á eftir. Síðan koma kosningar og við erum ekki byrjuð á Fljótagöngum. Þá kemur allt í einu bara ný ríkisstjórn sem ætlar að fara í Súðavíkurgöng eða bara einhver allt önnur göng og þá verða Fljótagöngin heldur ekki á dagskrá. Er þetta það sem við viljum hér og samþykkja hér á Alþingi Íslendinga? Ég segi nei. Ég held að það sé afar mikilvægt að við fylgjum eftir þessu fyrirkomulagi sem hefur verið bara nokkuð góð sátt um. (Forseti hringir.) Það hefur vissulega verið tekist á um alls konar framkvæmdir en á endanum höfum við verið sátt við þá niðurstöðu hér og meiri hlutinn hefur ráðið hingað til. (Forseti hringir.) Það hafa ekki verið teknar svona pólitískar ákvarðanir áður og mér þykir það miður.