samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ágætisræðu. Áður en ég beini spurningu til hv. þingmanns þá langar mig að taka undir það sem kom fram í orðaskiptum hv. þingmanns við hv. þm. Jens Garðar Helgason þar sem hv. þingmaður spurði hvort það hefði e.t.v. verið réttara að fjalla fyrst um innviðafélagið, hvað hv. þingmanni þykir um það, því að þessi tvö mál verða ekki rædd sem algerlega ótengd mál. Það er augljóslega algerlega samofið hvernig þetta er sett upp.
Svo langar mig að velta nokkru upp með hv. þingmanni. Það kom fram í spurningu frá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur til hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur sem ég hafði ekki velt fyrir mér og ég hef, held ég, ekki heyrt svar við henni. En það voru vangaveltur um það, hv. þingmaður, hvort það væri einfaldlega heimilt skv. 40. gr. stjórnarskrárinnar að innviðaráðherra, fyrir hönd ríkisins, færði eignir sem eru almenningseign inn í slíkt innviðafélag, þ.e. að hann tæki það þá út úr reikningi almennings og færði það inn í sérstakt félag sem má svo jafnvel halda fram að liggi ekki alveg ljóst fyrir á hvaða forsendum muni starfa. Það eru kannski þessar tvær spurningar sem ég myndi vilja byrja á og svo er ég með eina eða tvær til að bæta við í seinni umferð.