samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek undir það að ég held að það hefði verið betri bragur á því að byrja á að ræða um innviðafélagið því að samgönguáætlun byggist svolítið á því að þetta innviðafélag verði stofnað og það sé hægt að fara í þessi stjörnumerktu, arðbæru verkefni. Hins vegar er hér líka stjörnumerkt verkefni sem eru Fljótagöng því að þau eru fyrst í forgangi þegar kemur að jarðgangaáætlun og það eru framkvæmdir sem eiga að rjúfa þessa kyrrstöðu. Hins vegar er það þannig að Fljótagöngin, svona eins og það blasir við manni þegar maður les gögnin, eru ekki fjármögnuð og þau eru ekki arðbær miðað við umferðartölur. Þá sækir eðlilega að manni sá grunur að þetta fjárfestingarfyrirtæki byrji, eðli málsins samkvæmt, á arðbærari verkefnunum áður en það getur mögulega farið í þau sem eru óarðbær. Þá hugsar maður: Verður farið í Fljótagöng? Því að ef það á að setja einhverja fjármuni inn í innviðafélagið eða dótturfélög eða hvernig sem það er hugsað, þá þurfa þeir fjármunir að vera eyrnamerktir í fjármálaáætlun og ekki sé ég það. Þannig að þetta er alveg spurning sem þarf að svara vegna þess að maður fær þá tilfinningu að hæstv. ríkisstjórn segi eitt, eitthvað sem hljómar vel, en svo þegar maður fer aðeins að grafa ofan í það þá er bara einhvern veginn allt annað undir yfirborðinu, því miður, ekki í öllum tilfellum en það kemur fyrir. Þegar kemur að því hvort innviðaráðherra megi hreinlega færa almennar eignir inn í innviðafélagið þá hef ég ekki lúslesið þetta en ætla að gefa mér að hæstv. ríkisstjórn sé ekki að ákveða eitthvað sem er ólöglegt. Hins vegar ýtir það einmitt undir það sem hv. þingmaður byrjaði sína ræðu á hér áðan, þ.e. hvort við hefðum hreinlega ekki þurft að byrja að ræða innviðafélagið áður en við færum að ræða samgönguáætlun þar sem þetta hangir óneitanlega saman eins og við heyrum á umræðunni. Þetta blandast alltaf inn í umræðuna um samgönguáætlun, þetta blessaða innviðafélag, sem getur verið mjög jákvætt líka.