157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:14]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held nefnilega að við hefðum akkúrat átt að gera það. Við hefðum þurft að vita og skilja nákvæmlega uppbyggingu og tilgang innviðafélagsins áður en við höldum áfram umræðunni um samgönguáætlun. Stjörnumerkingarnar. Ég átti samskipti í gærkvöldi við hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur varðandi þessar stjörnumerkingar. Mig minnir að það hafi verið í samhengi við vegkaflann milli Þelamerkur og Akureyrar, að hann væri stjörnumerktur. Og svo talar hv. þm. Ingibjörg Isaksen núna um að Fljótagöng séu stjörnumerkt. En ég hef lagt þann skilning í stjörnumerkingu að það væri merki um að framkvæmdin væri arðbær. Ef Fljótagöng yrðu stjörnumerkt — nú er ég ekki að tala gegn þeim, ég er bara að reyna að skilja málið — ef þau eru merkt með stjörnunni þá kemur það svolítið á óvart því að þá er um að ræða framkvæmd sem er áætluð upp á 21,5 milljarða kr. en 18,5 milljarðar yrðu þá að koma frá ríkinu, væntanlega, miðað við áætlaða umferð, þ.e. þá rétt rúm 90%. Þá eru ekki nema 10% frá fjárfestum vegna þess að allt sem er yfir 50% er þá í raun og veru á ábyrgð ríkisins. Þannig að ég er ekki, hv. þm. Ingibjörg Isaksen, enn þá búinn að ná alveg utan um þetta og ég er ekki alveg sannfærður um það heldur, svo það sé sagt, frú forseti, ekki meint á neikvæðan hátt heldur bara að ég er ekki alveg sannfærður, að þeir sem eru að mæla fyrir um þessa leið, með frumvarpið skrifað eins og það er skrifað, séu heldur allir alveg með það á hreinu nákvæmlega hvað þetta þýðir.