samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Þegar kemur að stjörnumerkingunum — nú fengum við kynningu, þingflokkurinn, á þessu innviðafélagi í gær sem svaraði einhverjum spurningum en vakti líka fleiri spurningar sem er enn ósvarað. Eins og ég skildi þetta, og nú er ég ekki sérfræðingur í þessu, er verið að stofna innviðafélag og undir því á að stofna einhver dótturfélög sem eru þá með hvert verkefni fyrir sig. Til að fara í verkefni þurfa þau að vera arðbær. Það þarf að vera einhver X mikil umferð um vegaframkvæmdina til að greiðslurnar standist og þetta sé arðbært verkefni. Annars er fjárfestingarfélagið ekki að fara í það nema kannski í einstaka verkefni en þá þarf væntanlega að vera fjármagn til þess að geta farið í það. En eins og ég skildi ferlið þá erum við að samþykkja samgönguáætlun og við merkjum framkvæmdir sem við viljum að sé farið í, sem eru stórar framkvæmdir og innviðafélagið gæti hugsanlega farið í. Það eru stjörnumerkt verkefni. Það eru m.a. Fljótagöng, eins og ég skil þetta. Síðan fer það fyrir stjórn innviðafélagsins, ef það verður stofnað, þetta er allt með þeim fyrirvara. Hún tekur ákvörðun, metur þetta út frá vissum forsendum hvað er arðbært og hvað ekki og ákveður hvaða framkvæmdir af þeim sem eru stjörnumerktar af Alþingi Íslendinga það ætlar að fara í. Þeir geta bara stýrt því eins og þeir vilja og það er ekkert víst að Fljótagöng falli þar undir vegna þess að það er ekki arðbært verkefni og það þurfa þá að koma auknir fjármunir, eins og kemur fram í meirihlutaálitinu, frá ríkissjóði. Þess vegna er ég að velta fyrir mér: Hvar er það fjármagn? Hvar sjáum við það í fjármálaáætlun? Ég get ekki séð það. Það getur vel verið að það sé þar og ég vona að það sé hægt að fara í þetta. En þá er ákvörðunin ekki á Alþingi Íslendinga heldur er hún hjá þessu innviðafélagi um hvaða framkvæmdir á að fara í.
Síðan ákveður innviðafélagið líka gjöldin við framkvæmdina. Ef þú ert að fara í einhvern veg eða einhverja brú þá ákveður innviðafélagið gjaldið. Við getum ekki stýrt því hér á Alþingi. Ef við ætlum að fara að greiða niður eitthvert gjald inni á einhverjum vissum svæðum þá þurfum við í rauninni að búa til sérmál, það þarf að flytja það hér og samþykkja það. Það veit enginn hvenær það kemur, hvort það komi eða hvernig það lítur út. Það fylgir alla vega ekki með í þessu frumvarpi.