157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:32]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir að vera strax búin að gera mig að innviðaráðherra þó að ég geti því miður ekki svarað sem slíkur hér í pontu núna.

Innviðafélagið, eins og það er sett upp, er þannig að þú ert með eina mömmu, móðurfélag, móðurinnviðafélag. Það er svokallað C-félag sem er ekki með ríkisábyrgð. Síðan geturðu um hverja framkvæmd búið til dótturfélag þar sem þarf þá ekki ríkisábyrgð. En svo koma framkvæmdir eins og Fljótagöng þar sem er svokallað A3-félag, sem þýðir að það þarf ríkisábyrgð og stuðning frá ríkinu. Hvað þýðir það? Jú, þá geturðu búið til dótturfélag, A3, sem mamman á. Og svo geturðu líka búið til samvinnufélag, svokallað PPP, sem er dótturfélag. Það sem ég hef áhyggjur af er að ef einhverjir tveir einstaklingar taka sig til og vilja stofna fyrirtæki og bora Lónsheiðargöng — tökum það dæmi, alveg frábær gangakostur, sem er þó ákveðinn munaðarleysingi á flekaskilum kjördæma. Sunnlendingar eru ekki mikið að pæla í Lónsheiðinni og Austfirðingar eru meira að pæla í fjöllunum rétt í kringum sig. Þannig að Lónsheiðin, sem er frábær gangakostur, er hálfgerður munaðarleysingi á flekaskilum. Ef einhverjir einkaaðilar ætla að fara í þetta eða Eyjagöng þá skilst mér, og ég vil fá hrein og bein svör við því, að stofnun innviðafélagsins útiloki það í rauninni að einkaaðilar geti farið í einkaframkvæmdir. Það væri mjög miður af því að auðvitað viljum við hafa það þannig að ef einhver einkaframkvæmd fer í gang þá á það að vera hægt. En þetta innviðafélag er hins vegar þetta samspil og, eins og ég var að telja upp hérna, þessar framkvæmdir sem mögulega kannski á að fara í og mögulega kannski fáum við þá meiri pening í samgönguáætlun. Allt er þetta þannig að það er verið að færa pening á milli en á endanum þýðir þetta bara hærri gjöld og álögur af því að ríkisstjórnin ætlar ekki að lækka neitt á móti.