samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir hennar seinni spurningu. Ég lagði fram þingsályktunartillögu um samgöngufélagið Þjóðbraut þar sem fyrirmyndin er náttúrlega Spölur og Spölur er fyrirmynd færeyska módelsins. Það er í rauninni þannig að við förum að rukka í samgöngumannvirki og þurfum að rukka strax í samgöngumannvirki en á móti fellum við niður kolefnisgjöld, vörugjöld á bifreiðar, kílómetragjald. Við lækkum kostnaðinn, minnkum kostnaðinn við að eiga ökutæki en rukkum hins vegar í gjaldhliðum. Það er eitthvað sem þekkist víða. En það er náttúrlega vandamálið að hér er bara verið að bæta aukaskattlagi, aukaálagningarlagi, á íslenska ökutækjaeigendur. Þetta er bara svart og hvítt, þessar tvær hugmyndir. Ég held að hæstv. ríkisstjórn sé ekki búin að hugsa þetta til enda hvernig þau ætla í rauninni að gera þetta og hvernig þau ætla einhvern veginn mögulega að koma einhverju inn, eitthvað verði fyrir utan. Hvernig verður það fjármagnað? Það veit enginn.