157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:37]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans ræðu. Við deilum því milli okkar kjördæma, Suðurkjördæmis og Norðausturkjördæmis, og reyndar líka Norðvesturkjördæmis, að öll þessi kjördæmi hafa ferjur í siglingum út til eyja við landið. Í Eyjafirði er siglt út til Hríseyjar og út til Grímseyjar. Við í Suðurkjördæmi erum að sigla frá Þorlákshöfn eða Landeyjahöfn til Vestmannaeyja og Norðvesturkjördæmi er með ferjusiglingar út í Flatey og yfir Breiðafjörð. Það vekur athygli að meiri hluti samgöngunefndar kemur í sínu áliti inn á þetta og leggur til sérstaka ferjuáætlun. Það er alls ekki svo að ég sé neitt á móti því en ég myndi vilja spyrja hv. þingmann um það sem við höfum sjálfsagt báðir áhyggjur af: Þessi áætlun, þegar hún birtist, hvernig telur hv. þingmaður að menn ætli sér að fjármagna hana? Það er ekki gert ráð fyrir fjármagni í fjármálaáætlun eða fjárlögum svo séð verði til að fara út í bráðnauðsynlegar endurnýjanir á ferjum, engum af þessum ferjum, held ég, ekki svo mig reki minni til og eru þessar ferjur þó orðnar ansi gamlar, hvort þær eru komnar á fertugsaldurinn þarna í Eyjafirðinum og aðrar ferjur komnar vel til ára sinna úti í Grímsey, Hrísey og Flatey. Yngsta ferjan er Herjólfur sem er nú samt að nálgast tíu ár. Áður fyrr var nú verið að endurnýja Herjólf á styttri tíma en gerðist síðast. Það er auðvitað bráðnauðsynlegt að svona áætlun gangi fyrir en þó er nauðsynlegra að hún sé fjármögnuð. Hvert er álit hv. þingmanns á þessu?