samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Við erum greinilega sammála hvað varðar ferjuáætlunina um að það sé nauðsynlegt að hún sé fjármögnuð, sem ekki virðist vera og vandséð hvernig hæstv. ríkisstjórn ætlar að fjármagna þessa áætlun. Það er auðvitað afskaplega einfalt og auðvelt að vera með alls kyns áætlanir og jafnvel með einhverjar framkvæmdaáætlanir sem eiga að gerast eftir tíu eða 20 ár. Það er ósköp einfalt. Það er létt verk og löðurmannlegt að ákveða að fara að gera eitthvað eftir tíu ár eða 20 ár og láta svo öðrum eftir hvernig það verður þá fjármagnað þegar þar að kemur. En það er auðvitað alveg einkennilegt, frú forseti, að við séum hér að horfa á nefndarálit hæstv. samgöngunefndar um það, og það er ekki einu sinni í samgönguáætlun, að menn séu að uppgötva það núna, 2026, að semja þurfi einhverja sérstaka áætlun um það hvernig eigi að endurnýja þær ferjur sem ganga hér frá landi til eyja við Ísland.