157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:43]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir hans seinni spurningu og hugleiðingar. Ég styð það að gerð verði ferjuáætlun, en ferjuáætlun ein og sér er einskisvert plagg ef það fylgir því ekki skuldbinding um að fjármunir fylgi með af því að, eins og ég sagði, ártölin sem eru núna í samgönguáætlun eru óskaártöl Vegagerðarinnar, ekki hæstv. ríkisstjórnar. Af því að við höfum verið að ræða hér Herjólf, sem er í kjördæmi hv. þingmanns, þá er það nú þannig að það sem ég hef líka áhyggjur af sem tengist innviðafélaginu er að lögin um innviðafélag muni útiloka það að félagið Eyjagöng geti staðið fyrir því að bora göng til Eyja. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða mjög vel og ég trúi ekki öðru en að það verði leiðrétt í meðförum þingsins til þess að það sé ekki útilokað að aðrir einkaaðilar geti hafið framkvæmdir eins og þessa.