samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Mig langar að koma inn á þá hluti sem snúa að samspili samgönguáætlunar og fjármálaáætlunar. Ef ég les þetta rétt þá virðast þær nú tala bara tiltölulega vel saman. En síðan eru þessi atriði sem hafa verið hér til umræðu sem snúa t.d. að gangagerð í innviðafélaginu og fleiri þáttum sem eru ekki í fjármálaáætlun þannig að við þurfum að horfa til þess að það komi inn á seinna tímabili. En af því að í okkar kjördæmi verður farið í gangagerð í Fljótagöngum og við höfum rætt það hér — ég átti hér orðastað í morgun við hæstv. ráðherra um mál sem sneri að þessum þætti. Þar blandast náttúrlega innviðafélagið inn í það og það á eftir að útfæra þann þátt. Því langar mig að spyrja hv. þingmann sem situr í umhverfis- og samgöngunefnd: Hefur nefndin haft það til hliðsjónar og reynt að tala þannig, verið í samstarfi við fjármálaáætlun þegar verið var að vinna að niðurstöðunni? Þetta þarf allt að tala saman í lok dags, ekki rétt? Því að ekki förum við í framkvæmdir sem eru ófjármagnaðar.