157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:47]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans spurningu hér. Jú, þetta er nefnilega einn samhangandi vefur: Fjármálaáætlun, samgönguáætlun, innviðafélag. Allt hangir þetta saman. Ein áætlunin eða eitt skjalið getur ekki sagt einhverja aðra sögu en hitt. Þá væri ósamræmi. Og hvort er þá rétt? Ég geri fastlega ráð fyrir því að meiri hluti nefndarinnar og fólk innan stjórnarflokkanna og meiri hluti fjárlaganefndar varðandi fjármálaáætlun — að þar tryggi meiri hluti nefndarinnar og tali saman sín á milli til þess að láta þessa hluti renna saman. Þetta er samtal sem ég geri ráð fyrir að eigi sér stað meðal meiri hlutanna í nefndunum, að þar sé samtal á milli. Það vill nú svo til að varaformaður fjárlaganefndar situr líka í umhverfis- og samgöngunefnd þannig að það samtal ætti að vera tiltölulega einfalt, hefði ég haldið.

En það er svo margt í kringum innviðafélagið sem á eftir að ræða og sem þarf að skýra og fara vel yfir því að þetta er í rauninni risamál. Ég held kannski að margir þingmenn átti sig ekki á því hvað þetta er stórt mál sem við erum með hér, að fara að stofna hér innviðafélag. Við erum að fara að taka risastórar framkvæmdir og setja inn í eitthvert félag sem verður samt með faglegri stjórn þannig að við höfum í rauninni ekkert um það að segja, þingið. Ég hef líka áhyggjur af því að við séum að búa til eitthvert hálfgert ohf. sem verði bara eins og ríki í ríkinu og ekkert er hægt að ráða við. Svo heyrir maður hér að það sé kallað eftir eigendastefnu, alveg eins og maður hefur heyrt með Landsvirkjun, Isavia og fleiri, að það vanti eigendastefnu innviðafélagsins.