samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sitt andsvar. Þegar maður horfir á innviðafélagið setur maður samasemmerki við Isavia en Landsvirkjun er nú svo sem annars eðlis og um hana gilda ákveðin sérlög, þannig að ég held að það sé kannski ekki akkúrat það sem við getum flokkað saman. Aftur á móti held ég að Landsnet sé á svipuðu reki, ef ég hef skilið þetta rétt. Þessi armslengd sem hugsanlega verður, við getum þá kannski séð fyrir okkur að öll verkefni sem eru óarðbær, þ.e. meira og minna stóru verkefnin sem eru úti á landi, þurfi þá að koma með boðvaldi frá ráðherra inn í innviðafélagið og þá flokkast þessi verkefni í A3, ef ég hef skilið dæmið rétt. Það eru þá kannski einu verkefnin sem framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið hafa eitthvað um að segja þegar innviðafélagið getur valið sér verkefni sem eru arðbær.