157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:50]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans seinni spurningu. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir. Eins og ég held að við skiljum þetta er í rauninni hægt að búa til dótturfélag við innviðafélagið þar sem félagið er ekki C-félag, sem sagt ekki með ríkisábyrgð eins og stóra innviðafélagið, heldur dótturfélag sem er A3, sem þýðir það að þá getur hæstv. fjármálaráðherra komið og sagt: Kæra innviðafélag. Hér er framkvæmd sem ég ætla að leggja inn í dótturfélag, inn í innviðafélagið, og svo borga ég með. Eða íslenska ríkið borgar sem sagt inngjöf, jafnvel eitthvert eigið fé og síðan einhverjar árlegar greiðslur til þess að innviðafélagið taki það inn. Þannig skil ég þetta. Þá veltir maður fyrir sér: Hvernig verður samspilið? Verður það þá þannig varðandi öll svona óarðbær verkefni að það verði allt í einu bara til 70 A3-dótturfélög í innviðafélaginu sem ríkið borgar inn í hvert og eitt og síðan pikkar innviðafélagið út bestu bitana og svo 70 alls konar verkefni? Hvernig verður þetta?