samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans andsvar. Jú, ég hef haldið nokkrar ræður um þetta hvað varðar forgangsröðun og meðferð fjármuna ríkisins. Það er auðvitað einkennilegt að þessi hæstv. ríkisstjórn sem nú situr við völd hafi einungis farið þá leið að auka ríkisútgjöld, hvort það voru 123 milljarðar, þegar útgjöld til innviðauppbyggingar eru bara brot af því. Ég veit ekki hvort þau framlög haldi vatni hvað varðar verðtryggingu, ég hef ekki kannað það en það væri kannski rannsóknarefni, þannig að það sést náttúrlega voða lítið af því að ríkisstjórnin sé að leggja ofuráherslu á innviði. Það er ekki þannig. Þó að hæstv. ríkisstjórn komi fram með frumvarp um innviðafélag þá er það bara alls ekki — menn eiga eftir að borga það. Og hverjir munu borga það? Notendur munu borga það, notendur. Þannig að ríkið er ekki að fara að leggja inn í nýjar framkvæmdir á því sviði á komandi árum, kannski næstu ríkisstjórnir. Auðvitað hef ég verið talsmaður þess að ríkisstjórnin lagi til í raun í eigin ranni, þ.e. í kerfinu, í ríkiskerfinu. Við fengum einmitt að sjá hérna yfirlit um hæstlaunuðustu ríkisstarfsmennina og manni blöskrar. Ég held að það sé alveg hægt að laga eitthvað til hérna og stoppa þessa eilífu þenslu ríkisbáknsins.