157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:17]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir hans fyrra svar hér. Mig langar að spyrja hv. þingmann, sem er nú eldri en tvævetur hér á þingi. Ég skil mjög vel að hér erum við mjög mikið að ræða framkvæmdaáætlun samgönguáætlunar sem snýr að fyrstu fimm árunum og þau miklu vonbrigði sem hafa orðið víðs vegar um land og ég held ekki síst á Austfjörðum og svo í Norðausturkjördæmi. Það kjördæmi telur sig mjög hlunnfarið í þessari samgönguáætlun og ekki síst Austfirðingar. Það kristallast kannski þegar það er búið að vera að vinna eftir ákveðinni áætlun, það er búið að vinna eftir ákveðinni forgangsröðun og svo kemur bara einhver hæstv. ráðherra og segir: Nei, nú er ég að koma með samgönguáætlun og ég ætla að breyta hér öllu. Ég ætla að koma með nýja forgangsröðun. Ég er ekki bundinn af fyrri samgönguáætlun. Ég þarf ekkert að taka tillit til þess sem hefur verið ákveðið. Þá veltir maður fyrir sér, virðulegur forseti, og mig langar að spyrja hv. þingmann: Er þá ekki langbest að við ræðum þá bara framkvæmdaáætlun samgönguáætlunar af því að allt hitt er í rauninni, þegar upp er staðið og öllu er á botninn hvolft, háð pólitískum duttlungum, hvort sem það er hæstv. ríkisstjórnar eða jafnvel bara hæstv. ráðherra og úr hvaða kjördæmi hann kemur, hvernig framtíðarsýnin er og forgangsröðun verkefna er? Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála þessu, að það sé í rauninni bara tímaeyðsla og verið að eyða dýrmætum tíma starfsfólks Vegagerðarinnar og ráðuneytanna og annað að vera að reyna að setja eitthvað niður hér frá 2031–2040, af því að þegar öllu er á botninn hvolft þá skiptir það kannski í rauninni engu máli?