samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Ég hef verið talsmaður þess að við ræðum hér bara raunverulega á mannamáli um það sem skiptir máli og það sem við getum gert og erum að gera. Það hefur viljað brenna við, t.d. með fjárlög, að það plagg, og fjármálaáætlun ekki síður, er óskiljanlegt öllu venjulegu fólki. Það er óskiljanlegt. Maður er að reyna að stauta sig í gegnum þetta og það er þrautinni þyngra. Samgönguáætlun er hátíð þótt hún sé illskiljanleg. Hún er þó hátíð miðað við það. Ég er alveg talsmaður þess, og tek undir með hv. þingmanni, að auðvitað eigum við að ræða um framkvæmdaáætlun til næstu nokkurra ára, eitthvað sem er fyrirsjáanlegt, og taka það mestmegnis til umræðu. Lengri tíma áætlanir. Auðvitað á að ræða það og auðvitað á að gera það. En að vera að áætla kannski tíu ár fram í tímann, eins og kom í ljós núna þegar þessi áætlun birtist, að fyrri áætlunum var bara kippt úr sambandi og þeim breytt. Það er kannski ekki hægt að treysta svo mjög á það sem verið er að áætla langt fram í tímann. Þannig að ég tek undir með hv. þingmanni með það að við eigum auðvitað að ræða það fyrst og fremst sem ríkisstjórnin er að fara að gera og ætlar sér að gera á sínum valdatíma en ekki eitthvað sem næsti ráðherra getur svo bara hætt við og breytt og tekið bara U-beygju um leið og hann er mættur í stólinn.