samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar. Það er auðvitað þetta með að taka stórar og djarfar ákvarðanir og þora að hugsa langt fram í tímann og auðvitað var það stór og djörf ákvörðun að fara í þessi göng á sínum tíma. Það verðum við auðvitað að viðurkenna. En ég heyri mjög gjarnan núna að samtalið sem er í gangi heima snýst svolítið um: Hvað ef eitthvað gerist í göngunum? Ég spurðist fyrir um þetta um daginn hjá Vegagerðinni, hvers vegna það væri ekki komið eitthvert opinbert varaplan. Ef eitthvað gerist þá er náttúrlega Breiðadalsheiðin ekki fær og þá þarf að hugsa fyrir því að vera alla vega með slóða eða varaleið tilbúna. Ef þessi samgönguæð rofnar í dag þá er engin tenging á milli þessara svæða nema bara með því að fara hina leiðina, sem er sem betur fer búið að opna fyrir í dag. Þannig að það er mikilvægt að taka stórar djarfar ákvarðanir og ég veit að ég og hv. þingmaður munum bindast sterkum böndum fyrir kjördæmið og fyrir okkar heimasvæði þegar kemur að því að knýja áfram þessar samgöngubætur. Ég fagna líka sérstaklega umræðunni hér um farnetið, svo ég komi því nú að.