157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:48]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara fá að þakka fyrir það að geta tekið þessa umræðu svona á kjördæmavísu og ég held að það styrki umræðuna. Hér koma þingmenn úr öllum flokkum og úr öllum kjördæmum og setja svolítið sín gleraugu á umræðuna. Ég held að það sé mikilvægt því ég hef líka gaman að heyra af þeim aðstæðum sem eru í Suðurkjördæmi eða Norðausturkjördæmi og mér finnst þetta svo heilbrigt fyrir umræðuna og það sýnir manni hversu mikilvægt það er að við eigum þingmenn úr öllum kjördæmum og úr öllum flokkum sem endurspegla ólíkan raunveruleika. Þess vegna er svo gaman fyrir okkur Maríu Rut Kristinsdóttur, formann umhverfis- og samgöngunefndar, að við deilum að mörgu leyti sama veruleika og þekkjum þessar áskoranir sem eru mikilvægar og við munum halda áfram að berjast fyrir þeim, ekki síst fyrir farnetinu. Ég veit að það var mikið til umræðu í nefndinni og það skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli, ekki síst núna þegar sólmyrkvinn mun eiga sér stað 12. ágúst, þá mun heldur betur reyna á það kerfi.