samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu og það var skemmtileg tilbreyting að heyra þingmann upp í pontu vera alsælan með samgönguáætlun, þetta er eiginlega jákvæðasta ræðan sem ég hef heyrt hérna í dag, það er ágætt að það er einhver alsæll. En mig langaði að vera á svipuðum nótum og hv. þm. María Rut Kristinsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, mig langaði að ræða aðeins við þingmanninn um farnetið. Ég hef haft umtalsverðar áhyggjur af þeim málum út af útfösun 2G og 3G. Mér finnst mjög skrýtið að þetta sé viðskiptaleg ákvörðun eins og hæstv. ráðherra hefur svarað í fyrirspurnatíma þingsins. Hann hefur svarað því til að útfösunin, þ.e. að slökkva á sendunum fyrir 2G og 3G, sé viðskiptaleg ákvörðun. Að gera það áður en 4G og 5G er orðið öruggt — við vitum að það eru miklar holur í kerfinu þannig að mig langar að spyrja þingmanninn: Finnst henni eðlilegt að svona öryggismál sé tekið á viðskiptalegum grunni? Ég get illa sætt mig við það. Síðan langar mig einnig að spyrja þingmanninn hvort hún geti tekið undir þau sjónarmið sem hafa verið uppi varðandi lágmarksfarnetsþjónustu, að slíkt verði skilgreint sem hluti af grunnsamgönguinnviðum, ekki eingöngu á stofnvegum heldur einnig á lykilleiðum sem tengja byggðir og þjónustu? (Forseti hringir.) Hefur þingmaðurinn skoðun á því?