157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:52]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir góða fyrirspurn um farnetin. Hún þekkir það jafn vel og ég hvað þetta skiptir miklu máli og auðvitað fór svolítið um mann þegar maður heyrði fréttir af því að það ætti að fasa út 2G og 3G án þess að við værum komin með viðunandi lausn. Hún er úr sama kjördæmi og ég og veit að mörg svæði í okkar kjördæmi eru hvorki með 2G né 3G í dag. Ég hef grun um að það hafi verið það sem nefndin hafði verið að ávarpa, að það sé mikilvægt að koma því í lag. Hvað farnetið snertir er þetta auðvitað allra verst á Vestfjörðum, þar eru langstærstu gloppurnar. Maður skilur alveg sjónarmiðin þegar verið er að fylla upp í götin, þarna er umferðin hvað minnst og íbúar fæstir, maður skilur það auðvitað að einhverju leyti. Nú er það þannig að við erum svolítið orðin ein eftir og það þarf að klára stofnvegina á Vestfjörðum til að tryggja þetta grunnatriði og ég er þess þenkjandi að mér finnst að grunninnviðir og mikilvægir innviðir þessa lands eigi að vera í eigu ríkisins. En það þýðir ekki að við getum ekki átt samstarf við einkafyrirtæki um ákveðna hluta þeirra. Það er náttúrlega búið að taka þetta úr höndum ríkisins nú þegar. Hvort hún sé að spyrja mig að því hvort við eigum að þjóðnýta til baka, ég veit það ekki, ég held að hún sé ekki að spyrja mig að því, (Gripið fram í.) og ég held að það sé kannski ekki endilega málið. En við eigum auðvitað að reyna að búa til þannig aðstæður að fyrirtækin vinni með okkur í því að tryggja þetta öryggi. Ef það er hægt þá held ég að það sé mikilvægt, ég vona að það svari spurningunni að einhverju leyti.