samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir andsvarið. Ég vil að sjálfsögðu ekki að það sé farið í einhverja þjóðnýtingu. Það er ekki eitthvað sem ég er hrifin af. Mig langar í seinna andsvari að ræða aðeins við þingmanninn um ferjumálin. Ég held ég hafi heyrt það að hún sé líka hrifin af komandi, vonandi, ferjuáætlun. Mig langar að spyrja þingmanninn varðandi fregnir sem bárust í gær. Nú í þriðja skiptið á stuttum tíma er verið að taka Baldur úr þjónustu til að sinna verkefnum tengdum Vestmannaeyjum sem er gríðarlega mikilvægt, en á móti kemur að það verður þjónusturof á Breiðafirði. Það verður þjónusturof í rauninni við Vestfirði vegna þess að báturinn sem mun leysa Baldur af (Forseti hringir.) þegar hann fer til Eyja siglir ekki til Brjánslækjar. Finnst þingmanninum ekki, (Forseti hringir.) sérstaklega með tilliti til þessa, mikilvægt að þessum málum verði komið á réttan kjöl (Forseti hringir.) og það sé horft á hlutina heildstætt? — Afsakið, forseti.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar að ræðutími er ein mínúta í síðari umferð.)