157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:56]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tengi mjög sterkt við ræðu þingmannsins og ég þakka honum fyrir að taka þetta upp varðandi Baldur á Breiðafirði sem siglir á milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Auðvitað er þetta óboðlegt fyrir þá sem nýta Baldur, það er það. Þó að maður hafi svo sannarlega skilning á þessum aðstæðum, ég nefndi það í minni ræðu að ég hef svo sannarlega skilning á þeim aðstæðum sem eru uppi í siglingum milli lands og Eyja, ég hef fullan skilning á því, þá er auðvitað alls ekki gott að þessi staða sé uppi. Það þarf auðvitað að finna einhverja viðunandi lausn á þessum málum. Það þarf kannski bara í fyrsta lagi að fara að dýpka í Landeyjahöfn og fá til þess alvörutæki. Þá fá íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum og í Flatey að hafa ferjuna sína í friði. Ég held að það væri það mikilvægasta sem við gætum gert, að fá alvörudýpkunarskip í Landeyjahöfn svo Herjólfur geti siglt á milli. En eins og ég sagði áðan þá var það röð tilfella í vor sem varð til þess (Forseti hringir.) að það varð þetta þjónusturof í samgöngum og ég bara vona að íbúar í Vestmannaeyjum (Forseti hringir.) þurfi aldrei að upplifa það aftur sem gerðist núna í vor.