157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:57]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætlaði að freista þess að sjá hvort hv. þingmaður gæti hjálpað mér að ná utan um það hvað gerist með þau verkefni sem eru stjörnumerkt, svokölluð, í samgönguáætlun og innviðafélagið vill ekki taka. Það er nú ítrekað sagt að þetta sé fjármögnuð samgönguáætlun, sem ég er auðvitað algjörlega ósammála, en ég átta mig ekki alveg á þessu. Það er búið að taka frá einhverja peninga til að fara í ákveðin verkefni og svo á hitt að fara inn í innviðafélagið en samt á innviðafélagið að vera algerlega sjálfstætt. Ef þeim líst ekki á verkefnið þá fara þeir ekki í það. Hvað ætlar ríkið að gera þá? Áttar hv. þingmaður sig á því?