157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:58]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að ég átti mig á því hvað þingmaðurinn er að meina og ég þakka honum fyrir þessa fínu fyrirspurn. Nú á auðvitað eftir að mæla fyrir frumvarpinu um innviðafélagið en eins og ég skil þetta þá fara verkefnin sem eru stjörnumerkt og eru í samgönguáætlun — ef þau fara ekki inn í innviðafélagið þá verða þau bara áfram í samgönguáætlun. Það er minn skilningur á málinu og ég hef ekki heyrt annan skilning á því í þeim ræðum sem ég hef heyrt hér í dag eða að því sé öðruvísi farið. Mér finnst þetta vera klókt, að hafa innviðafélagið við hliðina á samgönguáætlun. Ef við erum með verkefni sem svo sannarlega eru í samgönguáætlun sem passa inn í innviðafélagið og við getum tekið þau út úr samgönguáætlun og sett í innviðafélagið þá getum við búið til svigrúm fyrir önnur verkefni sem falla ekki undir þetta markaðspróf og passa ekki inn í innviðafélagið, þá er meira svigrúm fyrir þau í samgönguáætlun. Þetta er auðvitað ný hugsun og við erum náttúrlega að gera þetta í fyrsta skipti núna þannig að það er ekkert óeðlilegt að við séum að reyna að hugsa þetta: Hvað gerist hvenær? Hvað verður um þessi verkefni? Verður þá bara farið í einhver stórverkefni á höfuðborgarsvæðinu? Allt eru þetta mjög eðlilegar spurningar. Ég held að við verðum að hafa það í huga í þessu að ef við tökum stórar framkvæmdir sem eru í samgönguáætlun, segjum Kjalarnes, ég held að það sé sérstaklega nefnt í nefndarálitinu, þá er það framkvæmd upp á einhverja 6 milljarða og ég geri ráð fyrir því að hún passi inn í innviðafélagið og þá verði 6 milljarða svigrúm eftir í samgönguáætlun til þess að fara í verkefni sem þar eru. Þannig skil ég þetta. Ef hv. þingmaður hefur annan skilning á málinu þá held ég að það væri líka fróðlegt að heyra það.