157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:00]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Ég er eiginlega bara að reyna að ná utan um þetta. Er það þá réttur skilningur að alveg sama hvort innviðafélagið fari í verkefni eða ekki, þá ætlar þessi ríkisstjórn að fara í allt það sem stendur í samgönguáætlun og framkvæma, óháð því hvort það verði gert á markaðsforsendum, þ.e. af innviðafélaginu? Þá kannski spyr ég: Hvernig á að framkvæma það? Ætlar ríkið að vera með einhvers konar hliðarbatterí með veggjöld eða ætlar hún að setja meira fjármagn í það heldur en fjármálaáætlun segir til um?